
Kynning á tækifærum og styrkjum í Evrópusamstarfi
Þriðjudaginn 24. janúar 2017
Háskólanum í Reykjavík kl. 11-13 í Sólinni
Háskóla Íslands kl. 14-16 á Háskólatorgi
Þriðjudaginn 24. janúar nk. munu fulltrúar evrópskra samstarfsáætlana og þjónustuskrifstofa ásamt sendinefnd ESB kynna styrki og samstarfsmöguleika í Evrópusamstarfi. Kynningin verður haldin kl. 11:00-13:00 í Háskólanum í Reykjavík, í miðrými sem kallað er Sól, og kl. 14:00-16:00 í Háskóla Íslands, á Háskólatorgi.
Samstarfsáætlanir ESB styrkja íslensk fyrirtæki, stofnanir og skóla um 2,3 milljarða á ári
Árið 2016 hlutu íslensk fyrirtæki, stofnanir, skólar, félagasamtök og einstaklingar rúmlega 2,3 milljarða króna, eða um 19,4 milljónir evra, í styrki úr samstarfsáætlunum ESB. Stærstu styrkirnir fóru í rannsóknar-, nýsköpunar og menntaverkefni en háir styrkir fengust sömuleiðis til æskulýðsmála, menningar, kvikmyndagerðar, jafnréttismála, atvinnumála, fyrirtækjasamstarfs og almannavarna.
Evrópusamvinna er samstarfsvettvangur samstarfsáætlana ESB á Íslandi, Þar er að finna upplýsingar um allar samstarfsáætlanir sem Ísland er þátttakandi í innan Evrópusambandsins. Áætlanirnar eru reknar af mismunandi aðilum og er vefsíðunni ætlað að auðvelda yfirsýn yfir helstu áætlanir sem Íslendingar taka þátt í, en allt frá tilkomu EES samningsins árið 1993 hafa íslenskir aðilar tekið virkan þátt í margs konar Evrópusamstarfi. Á síðunni er einnig að finna kort með heildstæðu yfirliti frá árinu 2000 um dreifingu styrkja milli landsvæða og sveitarfélaga.
Áætlanir sem verða kynntar:
-
Almannavarnaráætlunin
-
COST rannsóknasamstarf
-
Creative Europe – kvikmyndir og menning
-
Enterpise Europe Network
-
Erasmus for Young Entrepreneurs
-
Erasmus+ menntun, æskulýðsmál og íþróttir
-
eTwinning – rafrænt skólasamstarf
-
Euraxess – evrópskt rannsóknarstarfatorg
-
EURES – evrópsk vinnumiðlun
-
Europass – evrópsk ferilskrá og færnipassi
-
Evrópa unga fólksins
-
Heilbrigðisáætlun ESB
-
Horizon 2020 rannsókna- og nýsköpunaráætlun
-
Atlantshafssamstarf
-
Nordplus – norræn menntaáætlun
-
Rights, Equality and Citizenship Programme
-
Uppbyggingarsjóður EES
Tækifæri fyrir skóla, fyrirtæki, stofnanir og samtök að kynna sér möguleika til evrópsks samstarfs á flestum sviðum menntunar, menningar og atvinnulífs.