
Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins (The Competitiveness and Innovation Programme , CIP) , er ætlað að efla nýsköpun hjá litlum og meðalstórum fyrirtækjum og stuðla þar með að samkeppnishæfni þeirra.
Áætlunin skiptist í þrjár undiráætlanir:
1. Frumkvöðlastarfsemis- og nýsköpunaráætlun (Entrepreneurship and Innovation Programme - EIP), til stuðnings hagstæðs starfsumhverfis fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
2. Upplýsingatækniáætlun (ICT policy support Programme – ICT PSP), sem hvetur til aukinnar þróunnar og notkunar upplýsingatækni.
3. Orkuáætlun (Intellegent Energy-Europe Programme - IEE), sem hvetur til sjálfbærrar orkunotkunar.
Evrópusambandið leggur 3.621 milljón Evra í áætlunina fyrir tímabilið 2007-2013, sem skiptist niður á undiráætlanirnar og renna 60% til EIP, 20% til ICT og 20% til IEE.
Hér má finna nánari upplýsingar um Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins og undiráætlanir hennar