Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hvers vegna halla hundar undir flatt?


Innskráning í Uglu:

Umsóknarfrestur:

Grunnnám/BS
• Tekið er við umsóknum í grunnnám fyrir skólaárið 2008-2009 frá 1. mars til 5. júní 2008.

   Rafræn skráning hér

  • Umsóknum skal fylgja staðfest afrit af stúdentsprófsskírteini. Fylgigögn skal senda í pósti til Nemendaskrár Háskólans, Sæmundargötu 6, 107 Reykjavík.
  • Þeir sem ljúka stúdentsprófi í vor sæki um rafrænt fyrir 5. júní og skili fylgigögnum jafnskjótt og þau liggja fyrir.

  Afgreiðsla umsókna og staðfesting:

  • Stefnt er að því að afgreiðslu umsókna í grunnnám verði lokið fyrir 30. júní.
  • Öllum umsóknum verður svarað.
  • Þeir sem hljóta skólavist fá sendan greiðsluseðil skráningargjalds um leið og unnið hefur verið úr umsóknum. 
  • Skráning tekur gildi við greiðslu skráningargjalds, innan þeirra tímamarka sem fram koma á greiðsluseðli.
  • Skráningargjald  er ekki endurkræft.
  • Skráning í einstök námskeið getur ekki farið fram fyrr en að skrásetningargjald hefur verið greitt.

 Forkröfur í BS nám í verkfræðideild 



Framhaldsnám/MS/ PhD og MPM
• Umsóknarfrestur fyrir framhaldsnám/MS og PhD er 15. april fyrir haustmisseri og 15. september fyrir vormisseri.

Umsóknareyðublað fyrir meistara- og doktorsnám Umsækjendur prenta eyðublaðið út og skila því útfylltu á skrifstofu verkfræðideildar, VRII, Hjarðarhaga 2-6, 107 Reykjavík.

ATH !  Framhaldsnemendur - AÐSTOÐARKENNARASTYRKIR

Forkröfur í MS nám í verkfræðideild

 

Einnig er í boði meistaranám í verkefnastjórnun MPM (Master of Project Management),sem er 2ja ára nám samhliða starfi.


Að hefja nám í janúar