 |
 |
 |
|
|
|
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins Veitir upplýsingar og aðstoð varðandi alþjóðlegt samstarf í menntamálum.
Endurmenntun Háskóla Íslands Sinnir þörfum starfandi háskólafólks fyrir endurmenntun eða símenntun.
Háskólaútgáfan Forlag sem sinnir hverskyns útgáfu á frumsömdum og þýddum verkum er varða rannsóknir og kennslu við Háskóla Íslands.
Íþróttahús HÍ er vettvangur íþróttakennslu og líkamsræktar fyrir nemendur og starfsfólk. Kennsla fer fram í leikfimissal á jarðhæð og tækjasalur er á 2. hæð. Húsið er opið mánudaga til laugardaga en lokað á sunnudögum.
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands Veitir kennurum Háskóla Íslands faglega aðstoð við að sinna sem best kennslu.
Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn Þjóðbókasafn og bókasafn Háskóla Íslands. Þar eru um 800 þús. bindi bóka, tímarita og annarra gagna, þ. á m. er safnið áskrifandi að fjölda rafrænna gagnasafna. Safnið býður upp á góða lestraraðstöðu. Nemendur og kennarar fá bókasafnsskírteini án endurgjalds og þeim býðst margvísleg fræðsla og leiðsögn við heimildaleit.
Listasafn Háskólans Annast varðveislu og viðhald stofngjafar og annarra verka í eigu þess og stuðlar að rannsóknum á íslenskri listasögu. Það stendur einnig fyrir sýningum, bæði á eigin vegum og í samvinnu við aðra.
Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands Aðstoð við námsval og ýmislegt annað er að námi lýtur.
Rannsóknaþjónusta Háskólans Eflir samstarf Háskóla Íslands og atvinnulífs og veita sérstaka þjónustu í tengslum við það alþjóðlega rannsókna- og tæknisamstarf.
Reiknistofnun Rekur tölvunet HÍ, sér um tölvubúnað til kennslu o.fl.
Skjalasafn Háskólans Söfnun og varðveisla skjala og annarra skráðra heimilda Háskóla Íslands og stofnana hans.
Tungumálamiðstöð Í Tungumálamiðstöð er aðstaða til sjálfsnáms í tungumálum. Þar hafa nemendur, kennarar og starfsfólk HÍ aðgang að fjölbreyttu úrvali námsgagna og nútíma upplýsingatækni til tungumálanáms.
|
|
|