
Nýsköpunarmiðstöð Íslands heldur utan um markvissa upplýsingamiðlun um fjármögnunarleiðir innan norræns samstarfs. Markmiðið er að upplýsa og auka möguleika íslenskra fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka og einstaklinga að sækja í samnorrænt styrkfé. Verkefnið var sett af stað sem átaksverkefni til tveggja ára og lauk 31. desember 2011. Frumkvæði að verkefninu og fjármögnun þess kom frá Norrænu ráðherranefndinni.
Á vefsíðu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands um norræna styrki er yfirlit samnorrænna styrkja- og stuðningsmöguleika flokkað eftir sviðum, yfirlit umsóknafresta og fréttir um það helsta sem varðar norræna styrkjamöguleika.
Verkefnisstjóri og tengiliður verkefnisins var Kjartan Due Nielsen, og er Kjartan nú komin í önnur störf hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Þrátt fyrir að verkefninu sé lokið mun Kjartan svara fyrirspurnum eins og kostur er.