Evrópusamvinna

Logo


Norðurslóðaáætlun - Northern Periphery Programme



npp logoMeginmarkmið Norðurslóðaáætlunar (Northern Periphery Programme, NPP) er að efla atvinnu-  efnahags-  og félagslega samvinnu svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana.  Norðurslóðaáætlun er 1 af 5  svæðaáætlunum  Evrópusambandsins sem tilheyra Interreg IVB.

Megináherslur áætlunarinnar eru eftirfarandi (úrdráttur):

Efling nýsköpunar og samkeppnishæfni 

  • Nýsköpun, samstarfsnet, samkeppnishæfni
  • Bætt aðgengi á sviði fjarskipta og samgangna
  • Sjálfbær þróun auðlinda náttúru og samfélags

Umhverfi sem styrkleiki norðurslóða og samhengi nýtingar og verndar

  • Þróun samstarfs þéttbýlis og dreifbýlis og kynning  arfleifðar.

Umsóknarfrestir um aðalverkefni eru að jafnaði tveir á ári og hægt er að sækja um styrki til forverkefna sem nýttir eru m.a. til að finna samstarfsaðila og til að þróa verkefnahugmyndir. Umsóknir um forverkefni eru ekki bundnar ákveðnum dagsetningum, umsóknarfrestur er opinn.

Umsjón á Íslandi: Byggðastofnun og Iðnaðarráðuneyti.  Tengiliður áætlunarinnar er Sigríður Elín Þórðardóttir.
 
Nánari upplýsingar hjá Byggðastofnun og á vefsíðu áætlunarinnar.