Evrópusamvinna

Logo


Menntaáætlun ESB - Lifelong learning programme



llp logoMenntaáætlunin sameinar stuðning Evrópusambandsins við menntun á öllum stigum, frá leikskóla til háskóla auk starfsmenntunar og fullorðinsfræðslu . Enskt heiti áætlunarinnar, “Lifelong learning programme” vísar til þess að menntun sé nám allt lífið.  Markmið áætlunarinnar er að stuðla að þróun öflugs þekkingarsamfélags í Evrópu.  Menntaáætlunin skiptist í undiráætlanir:

Comenius - leik- grunn- og framhaldsskólamenntun
Erasmus - háskólastigið
Grundtvig  - fullorðinsfræðsla og aðrar menntunarleiðir
Leonardo - starfsmenntun og þjálfun

eTwinning - áætlun um rafrænt skólasamstarf heyrir undir Comenius.

Þveráætlanir: stefnumótun, tungumálanám, upplýsingatækni, dreifing og kynning.
Jean Monnet áætlunin:  stuðningur við evrópskar stofnanir; stuðningur við evrópsk samtök og félög.

Gildistími: 2007-2013.

Nánari upplýsingar á Landskrifstofu menntaáætlunar Evrópusambandsins.

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins og Rannsóknaþjónusta HÍ reka Landskrifstofu menntaáætlunar Evrópusambandsins.