
Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur umsjón með Samkeppnis- og nýsköpunaráætlun ESB (CIP). Áætlunin varir frá 2007-2013 og er ætlað að hlúa betur að litlum og meðalstórum fyrirtækjum og ýta þannig undir aukna samkeppnishæfni og nýsköpun í álfunni. Áætlunin byggir á mörgum eldri áætlunum ESB sem hefur verið steypt saman í eitt undir þessum málaflokki með það að markmiði að styrkja enn betur stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja í Evrópu.
Evrópumiðstöð aðstoðar íslensk fyrirtæki við að komast í Evrópusamstarf. Hlutverk Evrópumiðstöðvar Impru er að koma á samstarfi milli íslenskra og evrópskra fyrirtækja, háskóla og eða rannsóknaraðila og stuðla þannig að aukinni tækninýtingu og þekkingu til þess að efla samkeppnishæfni og nýsköpun. Evrópumiðstöð Impru er hluti samstarfsnets 550 miðstöðva sem starfa á vegum Evrópusambandsins í yfir 40 löndum. Evrópumiðstöð Impru tekur einnig þátt í ýmsum Evrópuverkefnum og veitir fyrirtækjum aðstoð og upplýsingar um styrkveitingar Evrópusambandsins undir Nýsköpunar- og samskeppnisáætluninni (CIP).
Nánari upplýsingar hjá Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, leiðir einnig starfsemi Enterprise Europe Network á Íslandi en Íslandsstofa og Rannís eru samstarfsaðilar hennar.
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB
Landskrifstofa Menntaáætlunar ESB annast framkvæmd áætlunarinnar hérlendis. Rannís, Dunhaga 5, sér um rekstur Landskrifstofunnar.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Landskrifstofu Menntaáætlunar ESB
Landskrifstofa eTwinning, áætlunar ESB um rafrænt skólasamstarf
eTwinning heyrir undir Menntaáætlun ESB og snýr að leik-, grunn- og framhaldsskólum. Landskrifstofan annast framkvæmd áætlunarinnar og veitir skólum og kennurum stuðning og þjónusta. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins, Háskóla Íslands, sér um rekstur Landskrifstofunnar.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Landskrifstofu eTwinning á Íslandi
Rannís - Rannsóknamiðstöð Íslands
Rannís stuðlar að þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi á sviði rannsókna og þróunar. Rannís veitir upplýsingar og ráðgjöf um fjölda erlendra sjóða og samstarfsáætlana, m.a. 7. rannsóknaáætlun ESB.
Byggðastofnun - Landskrifstofa Norðurslóðaáætlunar
Landsskrifstofur Norðurslóðaáætlunar ESB (Regional Contact Point) eru í hverju þátttökulandi og er þeim ætlað að aðstoða við leit að samstarfsaðilum, annast kynningu áætlunarinnar og vera í nánu samstarfi við þátttakendur í verkefnum.
Byggðastofnun gegnir hlutverki landsskrifstofu áætlunarinnar hér á landi. Tengiliður er Sigríður Elín Þórðardóttir.
Upplýsingaþjónusta Menningaráætlunar Evrópusambandsins
Upplýsingaþjónustan hefur umsjón með menningaráætlun ESB sem er ætlað að ýta undir menningarsamskipti Evrópubúa og útbreiðslu evrópskrar menningar. Áætlunin nær til allra listgreina, menningararfleifðar og menningarsögu.
Nánari upplýsingar hjá Upplýsingaþjónustu menningaráætlunar
MEDIA upplýsingaþjónusta
MEDIA upplýsingaþjónustan hefur umsjón með MEDIA, kvikmyndaáætlun ESB sem styður verkefni og fyrirtæki í hljóðmyndræna geiranum í Evrópu.
Nánari upplýsingar hjá MEDIA
Skrifstofa Evrópu Unga Fólksins
Skrifstofa Evrópu Unga Fólksins er að Sigtúni 42 í Reykjavík. Þar geta umsækjendur fengið nánari upplýsingar um ungmennaáætlunina og rætt við starfsmenn um hugmyndir sínar að verkefnum.
Starfsmenn EUF veita einnig ráðleggingar og leiðbeiningar um það hvernig beri að fylla út umsóknir og annað sem snýr að umsóknarferlinu.
Skrifstofa Evrópu Unga Fólksins
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra
Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hefur umsjón með Almannavarnaáætlun ESB.
Félags- og tryggingamálaráðuneytið
Velferðarráðuneytið hefur umsjón með DAPHNE III, áætlun gegn ofbeldi, og PROGRESS, jafnréttis og vinnumálaáætlun.
Tengiliður: Linda Rós Alfreðsdóttir
Lýðheilsustöð
Lýðheilsustöð hefur umsjón með Heilsuáætlun Evrópusambandsins. Tengiliður áætlunarinnar er Jóhann Þór Halldórsson