Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hver er ber að baki og á hann bróður?


Innskráning í Uglu:

Alþjóðleg samskipti
bokasafnid

Verkfræðideild HÍ tekur þátt í margháttuðu erlendu samstarfi um stúdenta-, kennaraskipti. 

Stúdentaskipti
Að loknu fyrsta námsári geta nemendur sótt um að taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla og á sama hátt eiga stúdentar frá erlendum háskólum kost á að taka hluta af námi sínu við deildina. Algengast er að stúdentar stundi nám í eitt misseri við erlendan háskóla.

Verkfræðideild er aðili að NORDTEK áætluninni um samstarf norrænna tækniháskóla og verkfræðideilda. NORDTEK, heyrir undir NORDPLUS samtarfsáætlun Norðurlandaráðs, styrkir nemendur bæði grunn-og framhaldsnámi í verkfræði til tímabundinnar námsdvalar við einhvern "systurskóla" á  Norðurlöndunum.

Verkfræðinemar HÍ hafa aðgang að háskólum í Evrópu innan ramma SÓKRATES/ og LEONARDÓ áætlun Evrópusambandsins. Hin fyrri býður upp á nemendaskipti í líkingu við NORDTEK áætlunina, en hin síðari gerir nemendum fært að sækja um sumarvinnu hjá erlendum fyrirtækjum, sem fá hluta launakostnaðar greiddan gegnum áætlunina.

Formlegt tvíhliða samstarf Háskóla Íslands við ýmsa erlenda háskóla greiðir fyrir rannsóknarsamvinnu og auðveldar nemendum aðgang að framhaldsmenntun erlendis.  Má þar helsta nefna:

  • DTU, tækniháskólann í Kaupmannahöfn, og aðra háskóla á Norðurlöndum. 
  • Tækniháskólana í Karlsruhe, Berlín
  • Darmstadt í Þýskalandi,
  • Tækniháskólann í Kaunas í Litháen,
  • University of Washington Seattle,
  • University of Minnesota, 
  • University of Florida í Miami.
  • Cooper Union School of Engineering
Samnorrænir vísindastyrkir
Ýmsir kostir gefast á norrænum verkefna- og rannsóknastyrkjum. Fjölmargir möguleikar eru á að halda ráðstefnur og námskeið sem styrkt eru norrænum stofnunum eða sjóðum. Má þar m.a. nefna NorFa, Norræna rannsóknarráðið og styrki á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.