Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hver er munurinn á ferning og ferhyrning?


Innskráning í Uglu:

bleik00023577sm2.jpg

Félagsstarf
í grunnnámi verkfræðideildar eru fjögur nemendafélög sem halda uppi öflugu félagsstarfi og sinna hagsmunagæslu nemenda.  Mikið samstarf er á milli félaganna og standa þau saman að fjölmörgum atburðum yfir veturinn, má þar nefna árshátíð, almenn böll, teiti og ferðalög.  Ein og sér standa félögin fyrir vísindaferðum til fyrirtækja og öðrum uppákomum auk þess sem þau standa fyrir blaðaútgáfu. Ennfremur eiga þau fulltrúa á skorar-, deildarráðs- og deildarfundum.

Framhaldsnemar við verkfræðideild sameinast um nemendafélag sem þeir kalla Heron.

hopur00023611sm2.jpg

Námsferð
Á hverju vori fara þeir nemendur verkfræðideildar sem lokið hafa 3. námsári í námsferð erlendis.  Þar heimsækja þeir fyrirtæki og stofnanir sem tengjast fagi þeirra.  Nemendur skipuleggja ferðirnar í samráði við fararstjóra úr hópi kennara.

Til þess að fjármagna námsferðir gefa nemendur út blað á hverju vori.  Nemendur V&I  gefa út blaðið Vélabrögð, nemendur u&b gefa út blaðið ...upp í vindinn, nemendur r&t gefa út blaðið Raflost og nemendur í tölvunarfræði gefa út blaðið algrím.  Blöðin innihalda fjölbreytt og fræðandi efni og eru greinarnar skrifaðar bæði af kennurum innan deildarinnar og sérfróðu fólki úr atvinnulífinu.

Hér til vinstri má velja valhnappa sem vísa á heimasíðu hvers nemendafélags.