Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hvað inniheldur fræ?


Innskráning í Uglu:


Tveir strákar að læra

Verkfræði og tölvunarfræði:

  • 11 námsleiðir í boði, sjá flipana vinstra megin á þessari síðu.  ( Ath. grunnnám í fjármálaverkfræði heyrir undir iðnaðarverkfræði). Að auki er í boði þverfaglegt nám á meistarastigi í umhverfis- og auðlindafræðiupplýsingatækni á heilbrigðissviði og eðlisverkfræði.

  • Auðvelt að skipta um grein innan verkfræðinnar á fyrsta námsári.

  • Kennarar verkfræðideildar eru fremstir á sínum sviðum með sterk tengsl við atvinnulífið.   

  • Verkefni nemenda byggja yfirleitt á íslenskum viðfangsefnum og eru unnin í tengslum við atvinnulífið.  

  • Nemendum sem lokið hafa fyrsta námsári gefst kostur á að taka eitt til tvö misseri við erlenda samstarfsskóla. 

  • Traustur grunnur og öguð vinnubrögð einkenna nemendur frá verkfræðideild HÍ.
     
  • Frábærir atvinnumöguleikar að loknu námi.

 

Verkfræði og tölvunarfræði er kennd á þremur stigum:

Grunnnám  B.S. gráða er veitt að loknu þriggja ára grunnnámi. 180 ECTS.

Meistaranám  M.S.gráða er veitt að loknu tveggja ára framhaldsnámi. 120 ECTS.  Meistaranám í tölvunarfræði er þrjú misseri að loknu grunnnámi.  90 ECTS.

Doktorsnám.  180 ECTS.


Í Kennsluskrá 2008 - 2009 er m.a. að finna yfirlit yfir öll námskeið og námsleiðir sem í boði eru.  Kennsluskrá er gefin út árlega. Að öllu jöfnu fylgir nemandi þeirri kennsluskrá sem er í gildi þegar hann hefur námi, út námstímann. 

 

bokasafnid


Rannsóknir.
Í verkfræðideild HÍ er sterk rannsóknarhefð. Allir kennarar stunda rannsóknir á sínu fræðasviði:

     - Hagnýtar rannsóknir í þágu íslensks þjóðfélags 
     - Fræðilegar rannsóknir, birting niðurstaða á erlendum vettvangi.

Mikill kostur að nema við skóla með öflugt rannsóknarstarf:

     - Nemendur kynnast aðferðafræði rannsókna
     - Nálægð við vaxtarbrodd atvinnuvega

Skrifstofa
Skrifstofa verkfræðideildar er rómuð fyrir skjóta og góða þjónustu við nemendur. Stúdentaráð hefur veitt starfsfólki skrifstofu viðurkenningu vegna þessa.