Evrópusamvinna

Logo


Evrópa unga fólksins - Youth in Action



euf logoEvrópa unga fólksins (EUF) er styrkjaáætlun sem er ætluð ungu fólki í Evrópu á aldrinum 13-30 ára og þeim sem vinna með þessum aldurshópi.  EUF styrkir fjölbreytt verkefni og skiptist áætlunin í 5 flokka:  Ungmennaskipti, frumkvöðlaverkefni, lýðræðisverkefni, sjálfboðavinna, þjálfun og samstarf.

Ungmennaskipti
Skólahópar, hópar úr félagsmiðstöðvum eða ungmennahúsum og þeir sem vinna fyrir og með ungu fólki geta myndað tengsl við sambærilega hópa í öðrum Evrópulöndum.

Frumkvöðlaverkefni
Ungir frumkvöðlar eru í öllum bæjarfélögum en styrkir eru veittir til verkefna sem unga fólkið kemur með hugmyndir að og skipuleggur vinnuna með aðstoð leiðbeinenda.

Lýðræðisverkefni
Verkefni í þessum flokki eru ætluð til þess að hvetja ungt fólk til lýðræðislegra ákvarðanatöku og til þess að þau láti sig umhverfi sitt skipta.

Sjálfboðaliðaþjónusta
Stofnanir innan sveitarfélaga geta búið til verkefni og fengið til sín sjálfboðaliða í 2 – 12 mánuði.  Verkefnin geta verið t.d. að skipuleggja sumarhátíðir, vinna við minjasöfn, vinna með fötluðum, með börnum,  í tengslum við frístundaheimili og fleira.

Stuðningskerfi ungmenna
Þjálfun, tengslamyndun og fjölbreytt samvinna í æskulýðsmálum.  Ungmennaáætlunin gerir ráð fyrir möguleikum á að skipuleggja og sækja tengslaráðstefnur og ýmis námskeið og kynningar.

Gildistími: 2007 - 2013

Umsjón á Íslandi: Landsskrifstofa EUF

Nánari upplýsingar hjá Landsskrifstofu og á vef áætlunarinnar.