Evrópusamvinna

Logo


Enterprise Europe Network - CIP



een logoEnterprise Europe Network samstarfsnetið tilheyrir Frumkvöðla- og nýsköpunarhluta (The  Entrepreneurship and Innovation Programme, EIP) Nýsköpunar- og samkeppnisáætlunar ESB (Competitiveness and Innovation Programme,CIP). Markmið þessa samstarfsnets er að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki, rannsóknaraðila, opinberar stofnanir og háskóla við að efla samkeppnishæfni sína á alþjóðamarkaði. Samstarfsnetið vinnur að aukinni vitund um lög og reglugerðir Evrópusambandsins, býður upp á vettvang fyrir alþjóðlega samvinnu, aðstoðar innlenda aðila við að taka þátt í evrópskum verkefnum og að nálgast fjármagn. Ennfremur er lögð áhersla á að skipuleggja samvinnu og hvetja til þekkingar- og tækniyfirfærslu milli landa.  Í samstarfsnetinu eru um 580 samstarfsaðilar í yfir 40 löndum.

Gildistími: 2008-2014

Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands, leiðir starfsemi  Enterprise
Europe Network
á Íslandi en Íslandsstofa og Rannís eru samstarfsaðilar hennar. Sjá nánar á www.een.is