Evrópusamvinna

Logo


Annað hagnýtt



EURES (EURopean Employment Services) er samstarf um vinnumiðlun milli ríkja á Evrópska Efnahagssvæðinu (EES). Markmiðið er að auðvelda vinnandi fólki að flytjast milli EES-landa.  Meginþættir starfsemi EURES eru að leiðbeina fólki í atvinnuleit erlendis, veita upplýsingar um búsetu- og starfsskilyrði og aðstoða vinnuveitendur sem hafa áhuga á að ráða til sín fólk frá öðrum EES-löndum
Heimasíða EURES á Íslandi

EURAXESS er tenglanet rúmlega 200 miðstöðva í 35 Evrópulöndum og hefur allt sem þarf til að hjálpa vísindamönnum og fjölskyldum þeirra á öllum stigum þess ferlis að flytja til annars lands, alveg frá því undirbúningur hefst í heimalandinu og þar til fjölskyldan er búin að koma sér upp nýju heimili í nýja landinu.
Heimasíða Euraxess (á íslensku).
Heimasíða Euraxess (á ensku).

Europass - menntunar og starfshæfnimappan
Meginmarkmiðið með nýjum Europass er að auðvelda gegnsæi menntunar og starfsreynslu, bæði heima og að heiman. Europass er einnig ætlað að auðvelda samhæfingu prófskírteina og viðurkenninga og þar með auðvelda samanburð menntunar og reynslu yfir landamæri Evrópu. Vonast er til að frumkvæðið verði til þess að auka hreyfanleika fólks á milli landa, bæði vegna menntunar og atvinnu.
Heimasíða Europass (á íslensku).

Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar (Euroguidance)
Evrópumiðstöð náms- og starfsráðgjafar er hluti evrópsks samstarfsnets, Euroguidance, sem er ætlað það hlutverk að stuðla að auknum hreyfanleika ungs fólks í Evrópu með því að miðla upplýsingum um nám, vinnumarkað og lífskjör til íslenskra og evrópskra ráðgjafa. Þessu verkefni sinnir Evrópumiðstöðin m.a. með þátttöku í sameiginlegu Euroguidance fyrirspurnakerfi, útgáfu og dreifingu efnis um nám og störf, þátttöku í alþjóðlegum samstarfsverkefnum og með því að greiða fyrir samskiptum innlendra og erlendra ráðgjafa.
Heimasíða Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar.

Þjónusta við Cedefop (Evrópumiðstöð um þróun starfsmenntunar)
Þjónusta við Evrópumiðstöð um þróun starfsmenntunar / Cedefop er af tvennum toga.  Annars vegar er boðið upp á námsheimsóknir, sem áður voru starfræktar undir heitunum ARION og CEDEFOP, en hafa nú verið sameinaðar og eru hluti af Menntaáætlun ESB.  Námsheimsóknirnar eru ein af þveráætlun Menntaáætlunarinnar og er þeim ætlað að styðja við stefnumótun og samstarf í Evrópu. Þær eru miðaðar við 3-5 daga heimsóknir lítilla hópa sérfræðinga og ákvarðanatakenda frá Evrópu til tiltekins lands með það að markmiði að kynnast mennta- eða fagsviði í einu landi auk þess að stuðla að tengslamyndun þátttakenda og móttakenda.

Hins vegar er söfnun upplýsinga fyrir hina ýmsu gagnagrunna Cedefop. Búið hefur verið til net landskrifstofa  - ReferNet -  þar sem upplýsingum um tiltekin þemu er safnað og stutt landsyfirlit um starfsmenntun er útbúið árlega.

COST - Evrópusamstarf á sviði vísinda- og tæknirannsókna
COST (European Cooperation in the field of Scientific and Technical Research) er almennur  rammi um samstarf á sviði vísinda- og tæknirannsókna.

COST- netverkefni ("COST Actions") eru fyrst og fremst til að auðvelda evrópskum vísindastofnunum að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum  rannsóknarsviðum. Þátttakendur í COST-netverkum skiptast á reynslu og niðurstöðum með skipulegum hætti (fundir, ráðstefnur o.fl.) og stuðla þannig að betri árangri á viðkomandi sviði.  Nú eru 34 þjóðríki aðilar að COST- samstarfsvettvanginum, Ísland hefur verið aðili að samstarfinu síðan 1991.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu COST.   Einnig er hægt að hafa samband við Katrínu Valgeirsdóttur hjá Rannís.

EUROSTARS
Lítil og meðalstór fyrirtæki (LMF) eru lykillinn að framtíðarvelgengni Evrópu.  Þau stunda rannsókna- og þróunarstarfsemi sem oft á tíðum er erfitt að fjármagna.  
Evreka er samstarf 37 þjóðráðuneyta og miðstöðva sem styðja þróunarverkefni á sviði nýsköpunar og er þekkt fyrir hraðvirk og sveigjanleg vinnubrögð með litlu skrifræði og "bottom up" verkferlum og er EUROSTARS sameiginlegt hugarfóstur Evreka og ESB.   Markhópur Eurostars eru nýsköpunar-LMF sem stunda sjálf þróun á nýrri vöru eða þjónustu og eru markaðsdrifin, á alþjóðlegum markaði og setja markið hátt. Fjármögnun verkefnanna er að mestu leyti frá 33 þátttökulöndunum, á Íslandi er það frá Tækniþróunarsjóði en ESB leggur til viðbótar "top-up" til Eurostars-áætlunarinnar. Eitt samræmt matskerfi verður fyrir alla sem sækja um.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu EUROSTARS og hjá tengiliði áætlunarinnar á Ísland, Snæbirni Kristjánssyni hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, og á Eurostars síðu hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands