
Markmiðið með Almannavarnaáætlun ESB (Civil Protection Financial Instrument) er að fjármagna verkefni sem miða að því að vernda fólk, eignir, umhverfi og menningarminjar gegn náttúruvá eða váverkum af mannavöldum. Verkefni geta því tengst ógnum sem stafa af eldgosum, jarðskjálftum og snjóflóðum eða hryðjuverkum, tæknibilunum og umhverfisslysum, sem ógna ofangreindum þáttum. Um er að ræða styrki og framlög til æfinga, þjálfunar, vinnubúða og mótvægisaðgerða. Einnig er um að ræða þjónustusamninga til ákveðinna verkefna. Áhersla er lögð á viðbúnað og viðbragð aðildarríkjanna við að takast á við hættuástand. Hluti verkefnanna eru samstarfsverkefni.
Gildistími er 2007-2013
Nánari upplýsingar eru á vefsíðu áætlunarinnar.
Umsjón á Íslandi: Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Tengiliður Guðrún Jóhannesdóttir.