Evrópusamvinna

Logo


Áætlun gegn ofbeldi - Daphne III



daphne logoHlutverk Daphne III áætlunarinnar  er að styðja við verkefni sem vinna gegn ofbeldi gegn börnum, ungmennum og konum. Meginmarkmiðið er að hvetja til og koma á fót skammtíma- og langtímaverkefnum sem ætlað er að vernda þessa hópa gegn hvers kyns
ofbeldi, efla stuðning við þolendur ofbeldis og stuðla að bættu líkamlegu og andlegu heilbrigði. Á árinu 2008 var meðal annars lögð áhersla á verkefni gegn mansali og kynferðislegri misnotkun, ofbeldi sem tengist ákveðnum hefðum, má þar nefna umskurð kvenna og heiðursmorð, og verkefni gegn ofbeldi á konum og börnum innan veggja heimilis og í skólum. Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur umsjón með áætluninni hérlendis.

Þeir sem geta sótt um styrki eða verkefni til Daphne III eru:

  • félagasamtök,
  • opinberir aðilar, til dæmis sveitarfélög og stofnanir,
  • háskólar og rannsóknarmiðstöðvar.

Evrópusambandið setur sér ákveðin markmið og áherslur fyrir hvert ár og til að ná fram þessum markmiðum er veittir tvenns konar styrkir:

  • Fjölþjóðleg verkefni þar sem samstarf er milli samtaka eða annarra
    aðila frá fleiri en einu Evrópuríki. Oft er óskað eftir samstarfi þar
    sem tvö eða fleiri lönd taka þátt í verkefninu saman.
  • Rekstrarstyrkir fyrir félagasamtök. Þessir styrkir eru hugsaðir í ýmis verkefni og má þar nefna:
    • styrki til að aðstoða og hvetja félagasamtök í starfi sínu til að berjast gegn ofbeldi,
    • styrki til að þróa og framfylgja átaksverkefnum,
    • styrki til að kynna niðurstöður verkefna sem tengjast Daphne-áætlunum,
    • styrki til verkefna sem styrkja einstaklinga sem eru í hættu á að verða fyrir ofbeldi,
    • rannsóknir sem tengjast ofbeldi og áhrifum þess á einstaklinga og samfélagið,
    • styrki til að þróa kennsluefni sem tengist viðfangsefni áætlunarinnar,
    • styrki til yfirfærsluverkefna, þ.e. verkefni sem hafa þótt ganga vel í einu landi og því er reynt að kynna þau í öðrum löndum,
    • styrki til að þróa og fylgja eftir stuðningsverkefnum fyrir fórnarlömb ofbeldis.

Daphne III áætlunin gerir einnig verktakasamninga en þá óskar Evrópusambandið eftir að ákveðið verk sé unnið fyrir þeirra hönd. Slíkir samningar eru auglýstir á heimasíðu áætlunarinnar.

Þá styrkir Daphne III áætlunin verkefni að hámarki 80% af heildarkostnaði þess en hámarksstyrkur er 250.000 evrur. Auglýsingar eftir umsóknum birtast á heimasíðu áætlunarinnar en þar er einnig að finna allar upplýsingar um hana.

Gildistími: 2008-2013

Umsjón á Íslandi: Félags- og tryggingamálaráðuneytið.
Tengiliður: Linda Rós Alfreðsdóttir.

Nánari upplýsingar er að finna á vef áætlunarinnar.