A Glacial Burst Tsunami Near Vestmannaeyjar, Iceland Journal of Coastal Research, Vol. 24, No. 1, 2008 eftir Jónas Elíasson
Á sögulegum tíma hafa mikil jökulhlaup farið niður Markarfljótsdalinn, hið síðasta um 100 árum fyrir landnám. Sýnt er fram á að slík flóð renna fram sem flutningsbylgja sem rennur beint yfir þurrt land með jöfnum hraða háðum landhalla. Þegar bylgjan kemur til sjávar verður til flóðalda (tsunami wave) sem breiðist út frá ströndinni og meðfram henni. Metið er hvort þessi flóðalda sé hættuleg byggðinni í Vestmannaeyjum og ályktað að hæð bylgjunnar sé ekki meiri en sog í höfninni voru áður, svo bylgjan þarf að hitta á stórstraumsflóð, en gerir þó aðeins takmarkaðann skaða.
Greinina má nálgast á slóðinni: http://www2.verk.hi.is/vhi/vatnaverkfrstofa/greinar/A_glacial_burst_tsunami%20.pdf
