Í októberhefti 2007 tímaritsins Review of Scientific Instruments birtist grein um hönnun og smíði segulspætuklefa þar sem mögulegt er að mæla rafviðnám þunnrar húðar á meðan hún er ræktuð eða að kanna áhrif breytilegs umhverfis á þunna húð inni í ræktunarkelfanum. Einnig er mögulegt að rækta húðir í gegnum grímur
og byggja upp einfaldar rásaeiningar. Segulspætuklefinn var hannaður af Sveini Ólafssyni vísindamanni á Raunvísindastofnun Háskólans og Unnari Bjarna Arnalds eðlisfræðingi á Raunvísindastofnun Háskólans og Matvice ehf. Verkfræðingarnir Jón Skírnir Ágústsson, Árni Sigurður Ingason, Anna Karin Eriksson og Kristinn Björgvin Gylfason, hönnuðu og þróuðu rafmælingarnar og framkvæmdu mælingar á þunnum húðum. Verk Árna og Jóns Skírnis voru hluti af MS ritgerðum þeirra, sem unnar voru undir leiðsögn Jóns Tómasar Guðmundssonar prófessors í rafmagns- og tölvuverkfræði.
Greinina má finna hér
http://link.aip.org/link/?RSI/78/103901
