Í októberhefti tímaritsins Journal of Wind Engineering and Industrial Aerodynamics birtist grein eftir þá Jónas Þór Snæbjörnsson, Chris J. Baker og Ragnar Sigbjörnsson. Greinin nefnist Probabilistic assessment of road vehicle safety in windy environments og fjallar um umferðaröryggi í vindasömu umhverfi. Í greininni er sett fram tölfræðilíkan til þess að meta akstursöryggi við flóknar umhverfisaðstæður og tekin dæmi um beitingu þess.
Jónas Þór Snæbjörnsson er fræðimaður og aðjúnkt við umhverfis- og byggingarverkfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands.
Chris J. Baker er prófessor í byggingarverkfræði við School of Engineering, University of Birmingham, Englandi.
Ragnar Sigbjörnsson er prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands. Hann veitir einnig Rannsóknarmiðstöðinni á Selfossi forstöðu.
