
7. rannsóknaáætlun ESB gildir fyrir árin 2007-2013. Markmið áætlunarinnar er að styðja við rannsóknir á öllum fræðasviðum í gegnum samstarfsverkefni Evrópuþjóða og fjölmargra landa utan Evrópu, með það fyrir augum að gera Evrópu að fremsta þekkingarsvæði heimsins. Íslendingar eru fullgildir aðilar að áætluninni í gegnum EES samninginn.
7. rannsóknaáætlunin skiptist í fjögur áherslusvið sem kallast Samvinna, Mannauður, Hugmyndir og Undirstöður. Þær skiptast í nokkrar undiráætlanir sem hver um sig styrkir rannsóknir og samstarfsverkefni á ákveðnum fræðasviðum samkvæmt eftirfarandi:
Samvinna
Hugmyndir
Mannauður
Undirstöður
Rannsóknamiðstöð Íslands – RANNÍS sér um 7. rannsóknaáætlunina og heldur utan um starfsemi landstengla allra undiráætlananna. Sjá nánar á www.rannis.is/7ra
Evrópusambandið heldur einnig úti upplýsingavef um áætlunina þar sem hægt er að nálgast öll skjöl og upplýsingar tengd áætluninni, t.d. um alla umsóknarfresti. Sjá nánar á http://cordis.europa.eu/